Ţađ er vor í lofti...
Annars verður maður að komast í lax, svona einn túr, eða silungsveiði með laxavon.
1 athugasemd

Ég er að fitubera leðrið á gönguskónum, nú skal farið til rjúpna í þriðja skiptið. Rjúpnaveisla aldanna árlega má ekki frestast annað árið.
Í mörg ár hefur föðurfjölskyldan mín stundað rjúpnaát sem næst þrettándanum, en á tímum friðunnar og lélegra aflabragða hefur komið fyrir að hormónahænsn sé á boðstólnum, þ.e. kalkúnn. Þrátt fyrir ágætt bragð af kvikindinu þá fylgir hverjum munnbita ákveðinn biturleiki, amk í munni veiðimannsins. Bragð mistaka og getuleysis þess að ná ekki að fæða fjölskylduna.
Ég nánast skammaðist mín að skjóta þær fáu hænur sem ég sá um helgina.En þar sem lungun loguðu og sárir fæturnir sviðu undan svitanum var ekki annað hægt en að lita fagurhvít klæði hænsnanna með rauðu. Aðeins fjögur kvikindi voru drepin á þremur dögum, að auki drap pabbi tvær, allt rennur þetta í sama sjóðinn. Halla kvartaði undan vondri lykt af mér eftir þriðja daginn, samt fór ég bað, en það tók ekki að þvo föðurlandið.
Ljósin í Laufrima eru birta frá sjónvarpinu, klósettinu og opnum örbylgjuofninum. Halla og Ágústa María vildu vera lengur í faðmi fjalla blárra eftir páska, en sendu mig suður í vinnu.
Hrafnhildur og Siggi Palli eignðuðust skvísu, hraustlega með fallegt höfuðlag.
Senn líður að kosningum og sama hvað kosið er, þá er það Framsóknarflokkurinn sem ræður næstu ríkisstjórn. Verður Framsókn nógu smá til að halda í horfinu eða nógu agnarsmá til þess að mynda 3 flokka stjórn með VG og Samfylkingu ?
Frjálslyndir virðast ekkert erindi eiga með öðrum flokkum.

Þegar hún sefur í fangi mínu, friðsæl, ljúf og sakleysið algert er mér nokkuð ljóst að það eru góðar líkur á að hún verði of dekruð og –vernduð af pabba sínum. Hvað er of eða van í þeim efnum?